The Daily Diff
Ég kenni vefþróun og á að vita hvað er að gerast í faginu. Ég geri það ekki alltaf. Það kemur nýtt AI model, nýtt framework eða nýtt security issue nánast á hverjum degi og ég nenni ekki að skrolla í gegnum Hacker News, GitHub Trending og fimm aðrar síður til að finna það.
Þannig að ég bjó til dagblað sem gerir það fyrir mig.
The Daily Diff kemur út á hverjum morgni og er alltaf fimm síður: ein stór frétt á forsíðu, fjórar um AI, fjórar um tech, fimm GitHub repos vikunnar og nokkrar stuttar í lokin. Hver frétt er tvær eða þrjár setningar, plús ein lína sem heitir „Why it matters“ og link á upprunalegu greinina. Tæknileg orð eru undirstrikuð og útskýrð þegar þú hoverar yfir þau. Repos-síðan er sett upp eins og hlutabréfatafla: stars, hvað bættist við í vikunni, hvað repoið gerir og eitt command til að prófa það. Svo er blaðið búið. Það tekur um fimm mínútur að lesa.
Mér fannst skemmtilegast að gera útlitið. Þetta á að líta út eins og gamalt dagblað á gömlum tölvuskjá. Allt sem er ekki texti er 1-bit dither: skuggarnir, myndirnar og brotið í miðjunni, ekkert er grátt. Page flip animationið er teiknað á canvas og síðan lyftist með textanum á sér. Myndirnar eru teiknaðar upp á nýtt á hverjum degi: modelið skrifar SVG af einum hlut sem passar við fréttina (hengilás við security frétt, svarthol við frétt um eðlisfræði) og svo er því breytt í dither og látið hreyfast aðeins. Það er splash screen í fyrsta skipti sem þú opnar blaðið á hverjum degi, dark mode á takkanum með tunglinu, og á síma skrollar þú hverja síðu í staðinn fyrir að sjá opnu.
Blaðið skrifar sig sjálft. Klukkan 06:00 keyrir pipeline í GitHub Actions sem sækir fréttir síðasta sólarhrings af Hacker News, Lobsters, GitHub og fjórtán RSS feeds (The Verge, Ars Technica, The Register og fleiri). Það hendir út duplicates, raðar eftir því hvað margir fjalla um fréttina og hversu ný hún er, og sendir það besta á Claude sem velur úr og skrifar. Links, stars og nöfn á heimildum koma beint úr gögnunum, modelið fær ekki að búa þau til. Ef blaðið fer yfir lengdarmörk eða notar sömu frétt tvisvar er það sent til baka. Ef allt klikkar stendur blað gærdagsins áfram. Þetta kostar mig um tvö sent á dag.
Það er nýkomið í loftið (19. nóvember). Það er archive með eldri blöðum og RSS feed. Newsletter er ekki tilbúið enn.
Kíktu á https://thedailydiff.news og segðu mér hvað þér finnst. Sérstaklega hvort þú myndir opna það aftur á morgun.
Tech stack: TypeScript, Astro, Tailwind, Claude API, Claude Code, sharp, GitHub Actions, Cloudflare.
Jakub Mierzejek