Vaktin.is fyrir snus, nema það lítur ekki út eins og 2004.
snus.click sækir verð beint úr vörulistum níu íslenskra vefverslana á átta klukkustunda fresti og stillir þeim upp hlið við hlið. Notandinn sér lægsta verðið á hverri dós, hvort hún er til á lager, og hvað hún kostar í raun ef keyptar eru fimm eða tíu í einu með sendingu.
Tölur
9 verslanir: SNUS.IS, Snus Kóngurinn, Nikulás, GS Búllan, Gryfjan, Djákninn, Svens, SnusAri og Smáríkið 596 vörur í samanburði, 229 þeirra fást í fleiri en einni verslun 1.160 verð sótt í hverri keyrslu, þrisvar á sólarhring
Hvernig þetta virkar
Söfnun: Þrír aðlagarar duga fyrir allan markaðinn: Shopify vörulistar, WooCommerce Store API og Upsell, íslenski verslunarvettvangurinn sem Smáríkið keyrir á. Ein verslun sem dettur út fellir ekki keyrsluna.
Pörun: Erfiðasti hlutinn. Verslanirnar nefna sömu dósina á níu vegu, þannig að titlar eru greindir niður í vörumerki, bragð, styrk, gerð (mini, slim, large) og pakkastærð, og úr því er búinn til lykill sem sameinar vöruna þvert á verslanir. Framleiðendur endurnefna líka bragðtegundir reglulega, til dæmis heitir Lyft Ice Cool núna Velo Crispy Peppermint, og þau tilvik eru leyst í uppflettitöflu. Vape merki sem deila bragðheitum með púðum eru síuð frá svo ELFBAR Blue Razz lendi ekki inni sem ICE vara.
Magnkaup: Verslanirnar eru með ólíkar reglur: Svens krefst fimm dósa að lágmarki, Gryfjan gefur fría sendingu yfir 12.000 kr., Djákninn rukkar 990 kr. á pósthús. Samanburðurinn reiknar heilar pakkningar, lágmarkspantanir og ódýrustu sendingu fyrir 1, 3, 5 eða 10 dósir, því ódýrasta dósin er ekki alltaf ódýrasta karfan.
Tæknin
Next.js 16 á Vercel, Neon Postgres með Drizzle, söfnun keyrð af cron. Verðbreytingar eru geymdar sem tímaröð, þannig að verðsagan byggist upp frá fyrsta degi. Viðmótið er innblásið af Bang & Olufsen: pappírsgrár flötur, hárlínur, engir skuggar, engin horn, brass sem eini hreimurinn. Á síma víkur níu dálka taflan fyrir spjaldalista svo ekkert skrunar til hliðar.
Aldursstaðfesting keyrir á undan öllu efni og svarið er geymt í vafra notandans, ekki á þjóni.
Hvað er næst
Verðvöktun fyrir verslanirnar sjálfar, byggð á verðsögunni sem er þegar að safnast, og tegundaröðun fyrir birgja.