Planning poker settur upp á skemmtilegan máta til þess að hjálpa teymum að skipuleggja sig.
Markmið tólsins er að gera planning fundi einfaldari, skemmtilegri og gagnlegri. Það hjálpar teymum að meta verkefni á hnökralausan hátt, skapa betri umræðu og ná sameiginlegum skilningi án þess að fundurinn verði þungur eða tímafrekur.
Planning poker á ekki að vera flókið ferli eða enn eitt tólið sem truflar vinnuna. Það á að styðja við teymið, einfalda ákvarðanatöku og gera áætlanagerðina markvissari.