Netvaktin birtir mælingar á völdum stafrænum innviðum Íslands. Sumar mælingar snúa að leiðum gagna og þjónustusvörun, aðrar að opinberum DNS-færslum eins og SPF, DMARC og DKIM. Markmiðið er að gera tæknilegar mælingar sýnilegar, skiljanlegar og aðgengilegar — án þess að setja fram endanlegan dóm um rekstur, öryggi, áhættu eða lagalegt samræmi.