Næsta stig er stærðfræðiforrit fyrir iPad og iPhone þar sem börn leysa dæmin með eigin hendi, eins og á blað. Barnið skrifar dæmið með Apple Pencil eða fingri, forritið tekur mynd af rithöndinni og gervigreindarkennari (Claude) svarar því sem barnið skrifaði í alvöru: svarinu, uppsetningunni og útreikningnum. Endurgjöfin kemur á nokkrum sekúndum, á tungumáli barnsins, um þetta dæmi.
Af hverju
Í PISA 2025 (OECD, 2026) fengu íslenskir 15 ára nemendur 450 stig í stærðfræði, OECD-meðaltalið er 463, og á einum áratug hefur stærðfræðikunnáttan fallið um 46 stig, mesta fall í OECD. 38% nemenda ná ekki grunnhæfni (þrepi 2) í stærðfræði. Þetta gerist í landi sem er fimmti stærsti fjárfestirinn í menntun í heiminum og með þau skólakerfi sem eru best undirbúin fyrir stafrænt nám. Peningarnir og tækin eru komin, efnið vantar. Öll æfingaforrit sem við fundum grípa bara lokasvarið, oftast með krossaspurningum þar sem barnið potar í skjáinn. Vinnubrögðin, þar sem villurnar sjást og lærdómurinn gerist, glatast. Næsta stig er búið til til að ýta undir að nemendur sýni góð vinnubrögð sem gefa fleiri stig en bara að skrifa svarið.
Hvernig það virkar
- Stutt handskrifað stöðumat finnur hvar barnið stendur
- Um 20 mínútur á dag: æfing, orðadæmi og upprifjun
- Næsti kafli opnast þegar barnið sýnir kunnáttu
- Flæðið er: Læra færni - Æfa færni - Orðadæmi út frá færni - "Próf"
- Efnið fylgir aðalnámskrá grunnskóla, 1. til 10. bekk, 1:1
- Þrír heimar (ævintýri, hafið og geimurinn) með eigin persónum og verðlaunum, svo barnið hafi ástæðu til að koma aftur
- Foreldrar fletta í öllum skrifuðum lausnum barnsins í tækinu og fá vikuyfirlit
Á sex tungumálum Íslenska, enska, sænska, danska, norska og finnska. Hvert Norðurlandamál fylgir námskrá síns lands (Lgr22, Fælles Mål, LK20, POPS 2014), með yfir 3.000 æfingadæmum á hverju máli, hvert leyst aftur og yfirfarið áður en það fór inn.
Persónuvernd Barnaforrit, hannað og útfært með COPPA og GDPR-K í huga frá fyrsta degi. Engir reikningar, engar auglýsingar, engin rakning. Við geymum aldrei myndina af rithöndinni: hún er unnin í minni meðan farið er yfir hana og Anthropic eyðir henni innan 30 daga. Öll vinna barnsins er bara í tækinu.
Staða
Í App Store síðan 19. september 2026 (Next Level Math / Næsta stig). Útgáfa 1.2 er send Apple til yfirferðar 27. september: iPhone, eitt frítt dæmi á dag án áskriftar, og danska, norska og finnska. Android-útgáfan er í lokuðum prófunum á Google Play. Vanilla JS og Capacitor ofan á þunnan Node-proxy bakenda. Byggt á Íslandi af foreldri sem vildi betra verkfæri fyrir eigið barn.
App Store: https://apps.apple.com/app/id6801184302 Vefur: https://naestastig.app