Frjálst gagnasafn yfir íslensk orð, beygingamyndir og samsetningu þeirra og fleira, undir frjálsu útgáfuleyfi ( LGPLv3 / ODbl ).
Höfundur leyfir sér að fara svolítið eigin leiðir í málfræði og gagnastrúktúr, t.d. er kynnt til leiks kennistrengi sem auðkenni fyrir skráð orð, og valkvæða annarskonar ritun orða með hart framborið L (łl), þá eru samsett orð skráð með samsetningarlýsingu og beyging þeirra leidd út frá lýsingunni.
Skráning orða hófst september 2022 með 8 nafnorð, 2 lýsingarorð og 3 sagnorð, eða 13 orð samtals.
Gagnasafnið telur í dag (2026-10) rúmlega 126.000 orð, og um tólfhundruð skammstafanir.