Þetta verkefni er einskonar gagnahlaðborð fyrir gervigreind (Claude Code) sem hjálpar henni að sækja og vinna með íslensk opinber gögn. Það er ekki grafískt tól heldur safn af SKILL.md skrám – ein fyrir hverja gagnaveitu (t.d. Hagstofu, Seðlabanka, HMS, Veðurstofu) ásamt Python skriptum og pökkum sem nýtast við gagnavinnu.
Með þessu sparar gervigreindin tóka (tokens) og context – hún þarf ekki að lesa langar API-skrár eða þrauka í gegnum langa vafraleit. Hún sér bara hvar gögnin og skýrslurnar eru, sækir þau með réttri scriptu, og getur síðan fléttað saman t.d. fasteignaverði frá HMS, loftgæðum frá UST og eldsneytisverði frá Gasvaktini – án þess að ruglast.
Hvernig virkar þetta í praxís?
Þú klónar verkefnið, keyrir ./setup.sh og uv sync – og ert kominn með vinnuumhverfi. Þegar þú spyrð Claude Code um eitthvað eins og:
„Sýndu mér fasteignaverð í Reykjavík 2024 ásamt loftgæðum og tengdu við veður á sama tíma“
– þá les Claude leiðbeiningarnar rétt skill, keyrir viðeigandi Python script, og vinnur úr gögnunum. Úttakið getur verið einföld CSV-skrá, graf eða stutt skýrsla.