Hlaupaplan er íslenskur stafrænn hlaupaþjálfari fyrir fólk sem vill æfa markvisst án þess að þurfa að passa inn í staðlað æfingaplan.
Notandinn velur hvort markmiðið sé ákveðin keppni eða einfaldlega að komast í betra hlaupaform. Hlaupaplan spyr um núverandi getu, vikulegt hlaupamagn, tiltæka daga og tímann sem má fara í hverja æfingu. Úr því verður persónulegt plan með skýrum æfingum og hraða- eða álagsviðmiðum.
Af hverju?
Stöðluð hlaupplön vita ekki að þú misstir úr æfingu, veiktist eða hafðir aðeins hálftíma lausan. Þau halda einfaldlega áfram. Eink þjálfun getur leyst þetta, en er ekki aðgengileg öllum.
Hlaupaplan tengir skipulagt æfingaplan við þjálfara sem þekkir markmiðið þitt, æfingarnar og það sem hefur raunverulega gerst. Þú getur spurt hvers vegna ákveðin æfing er á planinu, hvað eigi að gera eftir erfiða viku eða beðið um að planið verði lagað að breyttum aðstæðum.
Þjálfarinn leggur þá til nákvæmar breytingar sem þú sérð og samþykkir áður en þær eru framkvæmdar.
Hvernig virkar Hlaupaplan?
- Heimaskjárinn sýnir næstu æfingu, vikuna fram undan og stöðuna gagnvart markmiðinu.
- Dagatalið sýnir planið í viku- og mánaðarsýn ásamt mikilvægum keppnisdögum.
- Æfingar má skrá sem kláraðar, styttar eða slepptar og bæta við álagseinkunn og athugasemd.
- Hraðaviðmið byggja á raunverulegri getu, til dæmis nýlegu hlaupi eða VDOT-gildi, en ekki bara ósk um ákveðinn lokatíma.
- Vikulegt yfirlit setur æfingarnar í samhengi og hjálpar við undirbúning næstu viku.
- Strava-tenging flytur inn hlaupin þín, tengir þau við skipulagðar æfingar og sýnir leiðir, vegalengdir og hækkun. Þannig veit þjálfarinn hversu mikið þú hefur í raun hlaupið
- Tilkynningar minna á æfingar, vikuyfirlit og undirbúning fyrir keppnisdag.
Meira en bara spjall
Gervigreindin er ekki bara spjallgluggi sem gefur almenn ráð. Hún vinnur með raunverulegt, skipulagt æfingaplan og þekkir markmiðið, æfingahraðann, skráðar æfingar og athugasemdir notandans.
Þegar þjálfarinn leggur til breytingu er hún sett fram sem skýr tillaga. Ekkert breytist í æfingaplaninu fyrr en notandinn hefur yfirfarið og samþykkt breytinguna.
Staða verkefnisins
Hlaupaplan er virkt vefapp á íslensku og ensku. Nú þegar er hægt að stofna aðgang, búa til persónulegt æfingaplan, skrá æfingar, ræða við þjálfarann, samþykkja breytingar og tengja Strava.
Vefur: hlaupaplan.app