Það er ótrúlega mikil vinna að ákveða hvað á að vera í matinn alla vikuna, finna uppskriftir, skrifa innkaupalista og giska á hvað það kostar. Flestir enda á að kaupa sömu fimm hlutina, henda afgöngum og eyða meira en þeir ætluðu sér.
Hagplanið gerir þetta allt í einu skrefi. Þú segir hversu mörg þið eruð, hvert verðbilið er og hvað þið borðið ekki. Hagplanið setur saman vikumatseðil úr allskonar uppskriftum og reiknar kostnaðinn út frá raunverulegum verðum í Krónunni. Innkaupalistinn passar við uppskriftirnar og með einum smelli fer hann allur í körfuna þína hjá Krónunni.
Helstu eiginleikar:
Matarplanið
- Plani: aðstoðarmaður sem býr til planið og breytir því í spjalli. „Taktu kjúklinginn út og settu fisk í staðinn“, „ekkert með hnetum“, „ódýrara í næstu viku“. Innkaupalistinn og verðið uppfærast um leið.
- Handvirkt plan: viltu frekar ráða sjálf/ur? Veldu rétt í hvern reit og sjáðu kostnaðinn reiknast jafnóðum.
- Skipta út rétti: líkar þér ekki réttur? Einn smellur og annar kemur í staðinn sem passar sömu máltíð.
- Afgangar: kvöldmatur dagsins verður hádegismatur morgundagsins.
- Mataræði og ofnæmi: grænmetisfæði og ofnæmi eru alltaf virt.
- Sparnaður og næringargildi: sjáðu hvað þú sparar miðað við meðalverð og hvað planið gefur af hitaeiningum og próteini á mann á dag.
Verð og innkaup
- Rauntímaverð: 7.700+ vörur samstilltar reglulega við API Krónunnar. Ódýrasta varan á lager er valin fyrir hvert hráefni.
- Rétt magn: kostnaður á máltíð miðast við það sem er borðað, en innkaupalistinn við heilar pakkningar. Ekki 2,6 kg af kjúklingi þegar planið þarf 1,4 kg.
- Senda í körfu: allur listinn fer beint í Krónukörfuna þína með einum smelli. Uppseldum vörum er skipt sjálfkrafa út fyrir sambærilegar.
- Innkaupalisti: hakaðu við í búðinni, slepptu því sem er til heima (salt, olía, krydd) eða prentaðu listann út.
Uppskriftir
- Uppskriftasafn: 1.100+ íslenskar uppskriftir frá Krónunni, gervigreind og samfélaginu. Síaðu eftir máltíð, eldunartíma og verði á skammt og vistaðu eftirlæti.
- Þínar eigin uppskriftir: búðu til þínar máltíðir úr vörum Krónunnar og sjáðu verð og næringargildi reiknast á meðan þú skrifar. Notaðu þær í planinu eða deildu þeim í uppskriftasafnið eftir yfirferð.
Annað
- Vista og deila: geymdu plönin þín, settu vikuna í dagatalið eða sendu planið á makann með hlekk. Engin skráning þarf til að skoða.
- Virkar eins og app: settu Hagplanið á heimaskjáinn í símanum.
Árangur til þessa: Síðan fór í loftið í september 2026. 160+ notendur hafa skráð sig og átt 500+ samtöl við Plana.
Prófaðu:
- Opnaðu sýnisplan fyrir 4 manna fjölskyldu: 7 dagar, engin skráning
- Búðu til plan fyrir 4 í ódýrasta flokki og biddu Plana að skipta öllu kjöti út fyrir fisk.
Mig langar mest að vita: hvað er ruglingslegt, hvað vantar og hvað myndi fá þig til að nota þetta í hverri viku?
Tækni: React + Vite + Tailwind, Supabase (Postgres, Auth, RLS) og Vercel serverless. Krónuvörur samstilltar með cron-keyrslu, og 1.100+ uppskriftir þar sem hvert hráefni er tengt raunverulegum vörum. Plani keyrir á Claude API. Ég er ekki forritari að mennt, heldur með bakgrunn í gögnum og ferlum, og smíðaði þetta sjálfur með aðstoð gervigreindar.
Hannað og þróað af Alexander Fannberg.