Gluggaveður er nýtt íslenskt veðurapp sem byggir á gögnum frá Veðurstofu Íslands. Hugmyndin að appinu spratt frá því að vedur.is var vonlaus í síma og innbyggðu veðuröppin á iPhone og Android eru ekki með bestu veðurgögnin fyrir Ísland. Eftir að prófa líklega öll íslensku veðuröppin varð ljóst að það væri þörf á einföldu, fallegu og notendavænu appi sem passar stýrikerfinu en án allra auglýsinga eða áskrifta.
Appið er 100% native á bæði iOS og Android og fylgir hönnunarviðmiðum beggja stýrikerfa, Liquid Glass er nýtt á iOS og Material 3 Expressive á Android. Því er það gert frá grunni á iOS og Android í Swift og Kotlin á Android. Viðmiðið er að appið aðlagi sig stýrikerfinu eins og unnt er og því var lögð áhersla á að hafa heimaskjásgræjur (widgets), stuttleiðir, Apple Watch stuðning og ýmislegt fleira.
Helstu punktar appsins eru:
- Veðurstöðvaspár, með áherslu á textaspána
- Textaspáin er veðurspáin skv. Veðurstofunni og allt of mörg öpp fela hana eða gera lítið úr henni
- Lifandi veðurbakgrunnar fylgja veðurskilyrðum, tíma dags og birta rétta tunglstöðu þegar við á
- Kort með tímalínu með veðurstöðvum
- Veðurlög: Hita, úrkomu og vind á korti
- Spákort Veðurstofunnar eru aðgengileg sem opin gögn en hönnun þeirra passar illa inn í native öpp. Veðurstofa Íslands býður ekki upp á hráu spágögnin sem gera þau. Danska Veðurstofan hefur þau hins vegar opin og því eru þau sótt reglulega og geymd hjá netþjóni Gluggaveðurs. Þetta eru sömu gögn og íslenska Veðurstofan notar fyrir skammtímaspána, HARMONIE-IG (Iceland-Greenland) veðurlíkanið. Appið sækir síðan gögnin frá Gluggaveðri og setur síðan spálögin ofan á kort sem passar appinu á clientinum.
- Hvað kort sem passar appinu varðar þá notar iOS appið vitaskuld Apple MapKit. Á Android er notast við MapLibre en kortið sjálft (Versatiles og gervihnattamyndir) er hýst á netþjóni Gluggaveðurs til að appið reiði sig sem minnst á þriðju aðila.
- Norðurljósaspá, með tunglfasa og myrkvunarupplýsingum
- Appið býður líka upp á tilkynningar allt opt-in og undir engum kringumstæðum markaðsefni - enda er ekkert eftir að selja þegar þú kaupir og átt appið
- Veðurviðvaranir
- Dagleg veðurspá
- Marktækt veður, mikinn vind eða úrkomu
- Norðurljósavirkni
Þar sem stefnan frá upphafi var að hafa appið 100% án auglýsinga og áskrifta þurfti annars konar tekjumódel til að standa undir netþjóna og lénakostnaði og þá lá beinast við að selja bara appið í App Store og Play Store. Því kostar appið í áðurnefndum búðum. Naglasúpunotendum býðst það þó ókeypis með gjafakóðum hér: