Undanfarin ár hefur áfengismarkaðurinn á Íslandi verið í lausu lofti, ekki er tekið mark á einkasölu sem ríkið telur sig hafa rétt á og netverslanir spretta upp eins og enginn sé morgundagurinn. Að kaupa áfengi er því ekki lengur jafn einfalt og það var: sama varan getur kostað margfalt meira eftir því hvar hún er keypt, úrvalið er dreift yfir margar verslanir og enginn hafði yfirsýn yfir markaðinn í heild.
Alkóhóllistinn leysir þetta með því að safna öllum markaðnum á einn stað: 5.800+ vörur í 9 verslunum, uppfært daglega. Notendur sjá hvað kostar hvað og hvar, hvernig verð hafa þróast, hvaða vín eru bestu kaupin og hvar næsta verslun er staðsett.
Meginfídusar Alkóhóllistans:
- Verðsamanburður: Ber saman verð á 5.800+ vörum í 9 verslunum, uppfært daglega.
- Vivino-tenging: 2.200+ vín með Vivino-einkunn og upplýsingum um matar-pörun.
- V-skor: Bestu vínkaupin á Íslandi – reiknar saman Vivino-einkunn og verð.
- E-skor: Mælir hvaða vörur innihalda mesta alkóhólið fyrir krónuna.
- Verðvakt: Tölvupóstur þegar verð á vöru breytist.
- Tilboð: Heitustu afslættirnir á markaðnum hverju sinni.
- Áttaviti: Vísar þér á næstu áfengisverslun.
- Partýreiknivél og stórkaup: Áætlar áfengismagn fyrir veisluna og finnur hvar heildarkarfan er ódýrust.
- Kaloríur: Finndu drykkinn með fæstar kaloríur.
- Verðsaga: Sýnir verðþróun vöru í hverri verslun.
Árangur til þessa:
Síðan fór í loftið í mars 2026 og hefur nú þegar afgreitt 22.000+ leitir og sent 4.300+ viðskiptavini beint áfram í verslanirnar.
Prófaðu síðuna:
- Kveiktu á verðvakt á þinni uppáhaldsvöru.
- Finndu besta rauðvínið á undir 2.500 kr. sem passar með nautakjöti.
Veist þú um verslun sem vantar? Ertu með hugmynd að nýjum fídus? Sendu póst á info@alkohollistinn.is.
Tækni: 10 vefskraparar (9 verslanir + Vivino) og SQLite-gagnagrunnur með daglegum öryggisafritum í skýið. Hýst á Ubuntu-vél í svefnherberginu heima!
Hannað og þróað af Ými Halldórssyni.